Mosfellsbær einingahús

Framkvæmdum við Reykjahvol í Mosfellsbæ var að ljúka að mestu í vikunni. Eftir er að klæða aluzink á þakið og ganga frá rennum og munu innlendir aðilar sjá um það. Húsið er innflutt frá verksmiðju í Lettlandi sem Emerald ehf er með söluumboð fyrir. Sérfræðingar á vegum verksmiðju settu upp húsið. Húsið var reist í einingum á þegar steypta neðri hæð. Allt efnisval og frágangur með afbrigðum vandað. Útveggir, innveggir og kraftsperrur komu tilbúnar til ásetningar, ásamt fulleingrun í allt húsið. Utanhússklæðing er formáluð fíbersementsklæðning sem kemur formáluð að vali viðskiptavinar.