Um okkur
lykilmenn í samstarfi
Framkvæmdastjóri
Eigandi og starfsmaður fyrirtækisins frá upphafi árið 2002.
Hefur veitt ráðgjöf vegna einingahúsa, fyrst frá Kanada og síðar frá Lettlandi.
Örugg og arðbær fjárfesting – er eitthvað sem við flest viljum gera.
Það er hægt að gera með því að velja réttan samstarfsaðila, sem hefur reynslu og þekkingu á að takast á við krefjandi verkefni, eins og að hanna og byggja hús. Verslunarfélagið Emerald ehf uppfyllir þau skilyrði.
Við leggjum alltaf áherslu á að húsin standist allar gæðakröfur. Þau séu framleidd í samræmi við íslenskar byggingareglugerðir. Húsbyggjandinn nýtur ávaxtanna í búsetu í sérhönnuðu húsi sem og endursölu.
Fyrirtæki sem hefur að yfirlýstu markmiði að lækka byggingarkostnað á Íslandi svo um munar. Okkur hefur tekist það! Við tökum ekki mið af markaðsverði húsa á Íslandi, þegar tilboð eru gerð. Álagning okkar er hófleg og sýnileg.
Við erum fyrirtæki sem stuðlar að því að skapa framtíðarheimili fyrir viðskiptavini, þar sem lagt er mikið uppúr gæðum hússins og íhlutum þess, fagurfræði og endingu. Við miðlum af reynslunni til að svo megi verða.
Fyllið út formið hér að neðan og sendið fyrirspurn beint