Parhus_300fm_Útlit
| |

Parhús

Parhus_300fm_Útlit

Parhús 2 x 147 fm

 

Vegna fjölda fyrirspurna um parhús, þá birtum við hérmeð einfalda hönnun á 300 fm parhúsi.

Um er að ræða hús sem hannað er með sama vandaða sniði og útfærslu í efnisvali og önnur hús frá okkur.

Leitast hefur verið við í þessari útfærslu að hafa einfaldleikann og nýtingu með sem besta móti. Hægt er að breyta teikningum í samráði við okkar arkitekt.

Endilega hafið samband við okkur og óskið frekari upplýsinga.

Grunnmynd af 2x147fm parhúsi

Verð um 31 milljónir í febrúar 2019

Hvað er innifalið í verðinu?

  • Framleiðsluteikningar frá verksmiðju
  • Verksmiðjuframleiddir útveggir með lektum og rakavörn að innanverðu og utanverðu
  • Steinullareinangrun komin í útveggi
  • Utanhússklæðning standandi timbur, kemur ásett frá verksmiðju
  • Allt gifs á innanverða útveggi ásamt 12mm OSB undir gifsi
  • PVC Gluggar með tvöföldu gleri koma ísettir í einingar
  • Innveggir verksmiðjuframleiddir ásamt steinullareinangrun
  • Allt gifs á innveggi ásamt 12mm osb undir gifs
  • Þaksperrur/kraftsperrur
  • Allar lektur í loftin (þak) undir gifs (raflagnabil), rakavörn
  • Allt gifs í loftin
  • Steinullareinangrun í þak 250 mm
  • Þakklæðning 18-22mm ofan á sperrur/kraftsperrur
  • Icopal Balbit vandaður þakpappi ofan á OSB 18mm. 
  • Útihurðir PVC eða viðarhurðir og rennihurðir úti
  • Allar festingar og vinklar við sökkul og vinklar á sperrur
  • Allar aðrar skrúfur og festingar
  • Flutningsgjöld til landsins
  • Tollar og gjöld
  • Flutningstryggingar

Hvað er ekki innifalið í verði?

  • Bílskúrshurð – hægt að fá 
  • Innihurðir – hægt að fá
  • Járn á þak ásamt rennum og niðurföllum – keypt innanlands tilboð Áltak
  • Arkitektateikningar – keyptar af arkitekt
  • Verkfræðiteikningar – keyptar af verkfræðingi
  • Raflagnateikningar – keyptar af raflagnahönnuði
  • Uppsetning á húsinu – sérhæfðir menn frá verksmiðju geta sett upp húsið. Fast verð.
  • Sökklarnir – innlendir verktakar gera tilboð
  • Lóðin

Sendið okkur skilaboð

    Nafn (required)

    Email (required)

    Varðar

    Skilaboð

    Tengt efni