Einingahús nýtt 135 fm
Verslunarfélagið Emerald kynnir nýtt verksmiðjuframleitt einingahús 135 fm.
Verð um 13,7 milljónir komið til Reykjavíkur, tollafgreitt án uppsetningar m.v. gengi EUR í febrúar 2019
Hvað er innifalið í verðinu?
- Framleiðsluteikningar frá verksmiðju
 - Verksmiðjuframleiddir útveggir með lektum og rakavörn að innanverðu og utanverðu
 - Steinullareinangrun komin í útveggi
 - Utanhússklæðning formáluð Fíbersement 10-12 mm þykk
 - Allt gifs á innanverða útveggi ásamt 12mm OSB undir gifsi
 - PVC Gluggar með tvöföldu gleri koma ísettir í einingar
 - Innveggir verksmiðjuframleiddir ásamt steinullareinangrun
 - Allt gifs á innveggi ásamt 12mm osb undir gifs
 - Þaksperrur/kraftsperrur
 - Allar lektur í loftin (þak) undir gifs (raflagnabil), rakavörn
 - Allt gifs í loftin
 - Steinullareinangrun í þak 250 mm
 - Þakklæðning 18-22mm ofan á sperrur/kraftsperrur
 - Icopal Balbit þakpappi ofan á OSB 18mm
 - Útihurðir PVC eða viðarhurðir og rennihurðir úti
 - Allar festingar og vinklar við sökkul og vinklar á sperrur
 - Allar aðrar skrúfur og festingar
 - Flutningsgjöld til landsins
 - Tollar og gjöld
 - Flutningstryggingar
 
Hvað er ekki innifalið í verði?
- Bílskúrshurð – hægt að fá
 - Innihurðir – hægt að fá
 - Járn á þak ásamt rennum og niðurföllum – keypt innanlands tilboð Áltak
 - Arkitektateikningar – keyptar af arkitekt
 - Verkfræðiteikningar – keyptar af verkfræðingi
 - Raflagnateikningar – keyptar af raflagnahönnuði
 - Uppsetning á húsinu – menn frá verksmiðju geta sett upp húsið
 - Sökklarnir – innlendir verktakar
 - Lóðin
 
Sendið okkur skilaboð
[wpforms id=”6291″ title=”false” description=”false”]
