Skemmur og geymsluhús

Við bjóðum ráðgjöf og byggingarlausnir fyrir vélaskemmur, geymsluhús og önnur atvinnuhúsnæði. Hvert hús er útfært eftir notkun, aðstæðum á byggingarstað og þörfum verkkaupa.

Vélageymsla 200 m² — dæmi um frumdrög

Þetta kynningardæmi sýnir mögulega 10 × 20 m vélageymslu með 5 m vegghæð, mænisþaki og Tenax yleiningum. Burðarvirki kemur til greina úr stálgrind eða límtré, eftir endanlegri útfærslu.

Frumdrögin eru til kynningar, ekki til byggingar eða fast tilboð. Verkfræðingur þarf að staðfesta burðarvirki, festingar og undirstöður miðað við aðstæður á staðnum. Endanleg hönnun, efni, verð og afhending ráðast af þörfum verkefnisins og tilboði framleiðanda.