30 fm sumarhús

Verslunarfélagið Emerald ehf kynnir glæsilegt sumarhús, sem er að grunnfleti 30 fm. Svefnloft er um 17 fm. Stór verönd og gólf er innifalið sbr teikning.

Framleiðsla og efnisval

Húsið er verksmiðjuframleitt. Allir útveggir, innveggir og gólfuppbygging er í samræmi við íslenska byggingareglugerð. Allt húsið er einangrað með steinull. Borðaklæðning að utan og panill eða gifs að innan. Sólpallar fylgja með. Ennfremur fylgja með allar festingar, skrúfur, naglar og vinklar.

Útveggir

Útveggjaeiningar koma tilbúnar með ísettum gluggum og hurðum. Utanhússklæðning er sett á í verksmiðju að langmestu, einungis frágangur eftir við horn og samskeyti. Einangrun er steinull. Allar festingar fylgja með. 21 mm x 120mm borðaklæðning að utan, sem búið er að gagnverja með einni umferð. Gifs og votgifs að innan, eða panill eftir atvikum. Raflagnir fylgja ekki í verði en geta fylgt sé þess óskað.

Innveggir

Eru uppbyggðir þannig að votgifs er undir þar sem við á. Einangraðir með steinull. Milligólf fylgir einnig og er einangrað með steinull og uppbyggt tilbúið til ásetningar á gólfefnum s.s parketi eða flísum. Parket og flísar fylgja ekki með í tilboði, en hægt að fá í veggjaeiningar sé þess óskað, án aukakostnaðar.

Gólf

Er uppbyggt skv reglugerð þar að lútandi. 45x195mm burðarvirkistimbur, einangrun er steinull 200mm, lokun undir OSB 12mm, rakavarnarlag, og OSB plötur 22mm ofan á gólf. Parket og flísar fylgja ekki, en hægt að fá sé þess óskað.

Gler, hurðir og gluggar

Hágæða timburgluggar og útihurðir. Tvöfalt gler. Einangrunargildi: 1,3 W/m2K.  NDVK og DVV vottaðir CE merktir. Allar læsingar fylgja með, sem og innihurðir.

Þak og klæðning

Allt efni í þak fylgir, s.s þakkantar klæðning, einangrun, RUUKKI Premium stallastál, RAL litir að eigin vali, rennur og niðurföll. Þak er einangrað með steinull og uppbyggt í samræmi við íslenska byggingarreglugerð. Sperrur, öndunarbil, grind undir stallastál fylgir.

Hafið  samband við sölumann okkar í síma 698 0330 eða sendið okkur fyrirspurn. Smella hér til að senda okkur fyrirspurn.